Sævar Már Guðmundsson
24.08.2008 16:36:03 / BlogCentral

Af hverju er ég farinn að blogga aftur??

Ég veit ekki alveg hvað fékk mig til þess að blogga aftur en kannski er það bara þannig að enginn veit hvort ég sé að blogga eða ekki. Ég mun því ekkert vera að auglýsa síðuna mína á MSN eða neitt. Bara ef einhver leitar mig uppi þá er ég bara fundinn :)

Nú er Ólympíuleikunum lokið og ég verð að segja að ég á eftir að sakna þessa tíma. Ég svaf lítið á meðan á leikunum stóð og reyndi að ná flestum útsendingum. Ég var að enda við að horfa á úrslitaleikinn í blaki karla og var alveg himinnlifandi með það. Sammi hefði reyndar átt að skoða nýjustu leikreglurnar áður en hann byrjaði að lýsa. Jæja, hvað um það þetta var flott og ég var ánægður með RÚV, þ.e. að þeir hafi sýnt eins mikið blak og þeir sýndu, bæði blak og strandblak.

Nú tekur við ný vinnuvika og engir Ólympíuleikar :(  En það verður nóg að gera í vinnunni næstu vikurnar og ég hlakka til að fara í smáfrí 10. sept.

» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 373
Gamalt blogg